17apríl
halló fallega fólk... er ekki löngu komin tími á blogg? ég held þaaað
allavena, það hefur ýmsilegt drifið á daga mína frá seinasta bloggi...
mamma og jón komu í heimsókn og við áttum ekkert smá skemmtilegan tíma saman, Jón var að koma í fyrsta sinn til Parísar og fékk því að túristast smá á meðan ég og mamma fórum í smá verslunarleiðangur :D
við átum ekkert smá góðan mat og áttum mjög notalega helgi
fljótlega eftir að þau fóru kom pabbi í heimsókn :D við gerðum ógeðslega mikið gaman og skemmtilegt til dæmis fórum við á cité de science et l'indestrie sem er svona vísindasafn sem þú getur gert allskonar skemmtilegt í :D þar er líka IMAX bíó sem er KLIKKAÐ :D
svo fórum við líka í Ástíks garðinn þar sem ég þræddi klikkuðu rússíbanana, ein alveg óð :D ég fann mér líka nýtt GOAL í lífinu...ég ætla mér að fara í ALLA stærstu rússíbana heims :D JEY, einhver memm?
þessi vika hefur ekki verið auðveld! við í fjölskyldunni fengum hræðilegar fréttir og ég bið alla sem geta að biðja fyrir henni Esteri frænku um að hún nái bata.
svo ákvað tölvan mín að gefa upp öndina :S EN sem betur fer ákvað einn apple-gaur að vera ógeðslega góður og laga tölvuna mína að kostnaðarlausu TAKK GUÐ
svo er frí á morgun :D vikufrí og ég ætla að NJÓTA þess! Anna Björg mín sætasta og besta vinkona ætlar að heiðra mig með nærveru sinni á miðvikudaginn, það verðu LEGENDARY! :D
annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra, ég reyni að blogga allavena svona einu sinni enn áður en ég kem heim egtir 2 og hálfan mánuð :O
Guð blessi ykkur, lovelove
14janúar
jæja, ég er kannski ekkert duglegust í heiminum að blogga, en ætla að reyna að henda niður einu bloggi núna.
síðan ég kom til Parísar hefur verið kalt, en þrátt fyrir það mjööög gaman. er búin að vera hanga með tveimur yndislegum íslenskum stelpum. og fyndið að segja með þær báðar að ég þekkti þær í sitthvoru lagi í denn, Hún Eygló var með mér í kór hjá Möggu í gamla daga og Vaka með mér í grunnskóla í 1-4.bekk... hehe. Við höfum verið að gera ýmislegt skemmtilegt...svo sem fara á útsölur og borða pizzu í morgunmat kl.hálf 2 á sunnudegi, yumm yumm
næstu helgi ætlum við svo að heimsækja Vöku í sveitina þar sem hún er svo óheppin að búa ekki í París ;) en við ætlum að hafa typical stelpu time! as in, popp, kók og súkkulaði! gaman gaman ....
annars var ég lamin, það var sparkað í mig og í mig hentur hlutur seinasta mánudag! það var rosalega skemmtilegt... hvað ég gerði til að verðskulda þetta? jújú, ég lokaði tölvu stráksins :O flott ha?
eftir þetta var tölvan tekin af honum í viku og hann hefur verið stillur stíðan...
hey hafiði prófað að senda fólki sms og fá ekki svar? og vera svo alltaf að kíkja á símann og vonast eftir að hafa fengið svar... ?
þetta er allavena að gerast fyrir mig af og til og það er einum of óþolandi... eins og fyrir jól þegar ég var að versla jólagjafir og ég þurfti kannski ráð, eða að vita um stærð eða e-ð, og ég sendi Karen syssu sms og hún svaraði ekki eða að ég sendi Önnu sms og hún svaraði ekki... sem endaði á því að ég þurfti að fara AFTUR að versla jólagjafir...
svo eru sumir sem svara ekki smsum nema þeir innihalda spurningu! hehe... anyways =)
ég ætla að fara að læra... eða reyna það ;)
love you guys! later...
09janúar
jæja já! þá er jólafríið BÚTT! :O hvernig stendur á því veit ég ekki?
mér fannst það allavena líða of hratt og mig langaði sko bara alls ekki aftur til Parísar, hehe, en núna er ég komin aftur og búin að vera í heila 5 daga...
jólafríið var rosalega notalegt, ég hitti fólkið mitt aftur og fékk að eyða góðum tíma með þeim í matarboðum,spilakvöldum og videotime!
það var alveg æðislegt að hitta alla aftur og svo rosalega notalegt að koma heim, Jón hafði gert herbergið mitt alveg upp, byggt nýja skápa ofl =) og ég fékk að keyra bíl aftur =) og fara til tannlæknis þrisvar... =)
núna sakna ég allra á íslandi bara alveg á milljón og er bara að reyna að venjast því að vera frá öllum aftur, tek því bara einn dag í einu ;)
það er nú samt bara allt að gerast hérna hjá mér... ég fæ heimsóknir bara næstum í hverjum mánuði =D Anna kemur vonandi í Janúar, svo kemur Vigdís í Febrúar, svo koma Mamma og Jón í Mars, Pabbi í Apríl og í Apríl fer ég líklegast til Köben að hitta Rínu =)... og þá eru bara 2 mánuðir í að ég komi heim!
JÚHÚ!
annars er bara ógeðslegt frost í París eða um -6° alveg ískalt, e-ð sem Harpa fílar ekki...
en ég lofa að koma með annað blogg fljótlega... bara lítið sem ég hef að segja núna =)
lovelove
02desember
Núna eru jólin komin í París, ljós út um allt og jólamarkaðir hvert sem þú ferð.
Helgin byrjaði stórkostlega! Karen og Viggi komu í heimsókn og helgin með þeim var þokkalega AWESOME!
Karen og Viggi komust að raunvöruleikanum um hvernig ég bý hérna í París, þ.e.s. hversu ótrúlega lítil liftan mín er og staðreyndina um það að það sé ekki klósettseta á klóstinu mínu!
Við byrjuðum föstudagskvöldið á að fara á uppáhaldsstaðinn minn í Montmarte, sem er lítill ítalskur staður, og fyrir alla sem koma í heimsókn, þá verður farið með þá þangað. Allavena, þegar við komum þangað þá komumst við að því að jólasveinnin hafði þegar komið og ælt yfir allan staðinn! án gríns, jólaskreytingarnar voru hrikalega of miklar!
Efti góðan mat á góðum stað fórum við á Champs-Elycée og ætluðum okkur að kíkja á eitt stykki jólamarkað, náðum rétt svo að kíkja á nokkra bása áður en lokaði, keyptum okkur meðal annars jólasveinahúfur með blikkandi stjörnum og rúdólf á... þið getið séð þær á myndunum ;)
Laugardagurinn fór í smá búðarráp og kirkjuskoðanir. Ætluðum á jólamarkað í Saint-Sulpice sem var því miður ekki tilbúinn :O þó svo heimasíðan sagði að hann ætti að vera opin, þvílík svik!
svo fórum við í kokteilboð hjá íslensku sendiherrahjónunum í París í tilefni af 90 ára fullveldis afmæli Íslands. á leiðinni þangað, vorum við að labba, og svo óheppilega vildi til að Viggi var í hvítum strigaskóm, sem á einu augnabliki lenntu í hundaskít á götunni! HAHA... ég hélt ég myndi ekki hætta að hlæja! þetta var yndislega fyndið!
Kokteilboðið sjálft var rosa fínt :)
eftir boðið ætluðum við á jólamarkað á la Défense en komumst að því þegar við komum þangað að hann lokaði eftir kl.8 á kvöldin þannig við fundum e-ð moll þarna og borðuðum á stað sem heitir Hippopodamus, veit ekki hver fann upp á því nafni... þegar máltíðinni var lokið var komið að því að fara á klóstið, þannig við spurðum: hvar er klóstið? og fengum svar: það virkar ekki. við: núh? en annarsstaðar í mollinu? þau: nei, klóstin í mollinu eru lokuð á sama tíma og mollið.. við: og hvar eigum við þá að fara á klóstið....?!?!?!
eftir máltíðina enduðum við aftur á jólamarkaðnum á Champs-Elysée, sem er nottla bara æðislegur =D
Á sunnudeginum fórum ég og Viggi á smá rölt þegar Karen fór að heimsækja gömlu fjölskylduna sína hérna í France, við fórum einmitt á kaffihús sem hafði klósett sem vantaði klósettsetuna á? ætli þetta fylgji mér? þegar við þrjú vorum reunited fórum við á þennan blessaða jólamarkað á la Défense. Hann var sko risastór og ekkert smá jóló, ótrúlega kósý útum allt :D Allir ógeðslega jóló :D
Sunnudagskvöldið fórum við svo að borða í Latínuhverfinu... völdum okkur einn franskan, með einum bitrum þjóni, við hugsuðum með okkur að honum hefði kannski verið dömpað greyinu :S.... p.s. klóstið þar vantaði líka klósettsetu, plús þú máttir ekki henda klósettpappír í það :O
enduðum kvöldið með að fá okkur í og rölta í nokkrar litla túristabúðir :D
svo yfirgáfu þau mig mánudagsmorguninn, og París er engan vegin söm án þeirra. Enda var þetta stórkostlega æðislega fullkomin helgi =D=D=D
-myndir komnar inn ;)
jólakveðja,
votre muffin!